HSA átti ekki annara kosta völ.

HSA átti ekki annarra kosta völ 

,,Heilbrigðisstofnun Austurlands, það er að segja framkvæmdastjórnin, átti ekki annarra kosta völ út frá sínum starfsskyldum en að láta rannsaka það sem sneri að svokölluðum grænum seðlum og Hannesi Sigmarssyni yfirlækni,“ sagði Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis. ,,Svokallaðir grænir seðlar þýða að læknirinn fær borgað fyrir hverja einustu komu utan vinnutíma. Það eru engir á landinu sem notfæra sér jafnmikið þjónustu utan dagvinnutíma og Eskfirðingar. Á hverju ári eru greiddar til lækna á Eskifirði yfir tíu þúsund krónur á hvern íbúa. Þetta er langhæst yfir landið. Kostnaður pr. íbúa á Norð-Austurlandi er yfirleitt í kringum 2000 krónur. Þetta er ástæðan fyrir því að farið er að skoða þessa grænu seðla, sem sagt komur á Eskifirði til lækna utan dagvinnutíma. Það vekur athygli að þetta virðist vera svona fimm sinnum meira á Eskifirði en annars staðar.“ Berglind benti á að dregið hefði mikið úr grænu seðlunum á þessu ári, hverjar sem ástæður þess væru. 14 milljónir hefðu verið greiddar fyrir útköll utan dagvinnutíma í Fjarðabyggð fyrstu tíu mánuði síðasta árs en um 6 milljónir fyrir sama tímabil í ár. Alls staðar á landinu þyrfti að skoða út í hörgul hvar mætti draga úr kostnaði vegna 16% sparnaðar í heilbrigðiskerfinu á tveimur árum. ,,Þetta er alvarlegt mál sem við stöndum frammi fyrir hér. Það hafa verið þreifingar um hvort hægt væri að ná samkomulagi og við verðum að finna einhverja lausn og leitast við að ljúka þessu máli. Það reynir á alla aðila,“ sagði Berglind.

 

 

 

Tekið úr frétt Austurgluggans.


mbl.is Vilja að Fjarðabyggð yfirtaki stjórn heilsugæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Athyglisverð frétt. Ætli austfirðingar, sérstaklega Eskfirðingar, séu almennt svo vinnuveitendavænir að þeir fari ekki til læknis fyrr en eftir að vinnutíma er lokið?

Hér fyrir sunnan fara menn til læknis í vinnutímanum, á kostnað launagreiðandans, og þykir sjálfsagt - ráðuneytisstjórum líka.

En ég skil mæta vel að möppudýrum hér syðra þyki þetta austfirska fyrirkomulag alvarlegt mál - gæti verið fordæmisgefandi fjandi...

Kolbrún Hilmars, 6.11.2009 kl. 20:41

2 Smámynd: Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir

hahah það sagði mér maður sem var á þessum fundi íbúa um þetta málefni að það hafi einmitt komið upp, að ein sagði ... já en við erum að vinna og getum ekki verið að fara til læknis á vinnutíma

Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir, 6.11.2009 kl. 21:56

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Datt mér ekki í hug...

Kolbrún Hilmars, 6.11.2009 kl. 23:31

4 Smámynd: Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir

Jú jú eins og venjulega hittir þú hamarinn á naglan.... þetta passar betur, kann svo ílla við að höfuðið fari á naglann.........

Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir, 6.11.2009 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir

 

Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir

Ákveðin móðir 4 frábærra barna, tvö barnabörn. Á frábæran eiginmann og á yndislega vini, hver getur beðið um meira??. Staðreyndir: Skagfirðingur í húð og hár en þó ekki skáld og listamaður. Fædd að Laugarbóli í Skagafirði, en búið á Fljótsdalshéraði síðan 1980.

Og er nú stjórnarmaður í Heimssýn á Austurlandi.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 98340

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...cimg1005
  • ...cimg0642
  • ...cimg0779
  • Hér er svo litla frekjudósin
  • CIMG0644

330 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband