24.5.2012 | 09:19
Haldið í Skagafjörðinn enn eitt vorið.
Þá er að renna upp dásemdartími vorverkanna og því höldum við Sigurður Þorri (12 ára ) í fjörðin fegursta og gerums blómálfar tímabundið okkur til skemmtunnar. Þetta höfum við gert í all mörg ár og er gaman að rifja það upp að þegar ég var í fyrsta skipti í þessu blómálfa hlutverki, þá var það í starfskynningu frá Steinsstaðaskóla hjá föðurbróður mínum Fidda í Laugarhvammi. Hann átti og rak garðyrkjustöðin í Laugarhvammi í guð má vita hvað mörg ár. Nú en tímarnir breytast og dóttir Fidda, Jónína mín keypti stöðina af föður sínum og var ég hjá henni mörg vor og nú er það dóttir Jónínu sem er tekin við stöðinni og enn fer ég norður
og hlakka alltaf jafn mikið til.
En hvað skildu það vera mörg fyrirtækin í landinu sem geta státað af slíku, ekkert kennitöluflakk bara ættliðaskipti. Þarna eru engar offjárfestingar og flest nánast eins og þegar Fiddi stofnaði þetta. Moldin er reyndar ekki sigtuð lengur með höndunum en það eru þó bara nokkur ár síðan maðurinn minn smiðaði slíkan grip fyrir Jónínu til að létta henni verkin og er mikil sæla með þenn grip og nú er alltaf nýðst á "sigga" öll vor og ýmislegt skagfirst orðaval notað við þá skemmtun 
Mæli með að allir kíki í Garðyrkjustöðina Laugarmýri sem er 10 km fyrir innan Varmahlíð og versli sér stórustu kryddjurtirnar, langflottustu sumarblómin og hraustlegusu tré og runna, svo ekki sé minnst á nýuppteknar gulrætur.
Sáumst 
24.5.2012 | 00:56
Húsasmiðjan 109% hærra verð!
Tengdasonurinn gerði verðkönnun í dag og er þetta sláandi munur. Þetta er vara þar sem ekki er slegist um hylli kaupanda í fjölmiðlum og verslanir hirða því ekki um að hækka og lækka eftir því hvernig vindar blása.
14.2.2011 | 00:11
Hahhahha
Icesave opnar síðu..............
þetta er táknræn fyrirsögn verð ég að segja enda virðist icesave orðið að persónu í satanslíki sem leggur álögur á fólk sem ekki kann að sjálfstæða hugsun hvað þá að stjórna sér sjálft, en lætur leiða sig eins og lömb til slátrunar.
Ég tek eftir að að eigin nöfn eru sjáanleg á bak við þessa söfnun (mér gæti hafa yfirsést) og engan sé ég lýsa sig ábyrgan fyrir þessari söfnun. Það skil ég vel, enda ekki auðvelt að leggja nafn sitt við slíkt nema viðkomandi sé reiðubúin að opna veski sitt upp á gátt um alla sína framtíð og afhenda fjárglæframönnum framtíðar frjálsan aðgang að því sem og öllu sem viðkomandi vinnur sér inn næstu tugi ára ef ekki lengur og sennilega barna sinni líka.
Tek undir með hinni virðulegu og bráðskýru áttræðu konu sem hringdi inn á Útvarp Sögu og spurði hvar er þjóðin, hvar eru mæður komandi kynslóðar, ætlum við að láta þetta viðgangast spurði hún?
. Ég tek einnig undir með henni þegar hún sagði að þingmenn og menntamenn okkar þjóðar sem þetta styðja eruð HELVÍTIS AUMINGJAR og til hvers var verið að mennta ykkur ef þetta er það sem er í boði í staðinn?
Það verður ekki betur orðað en hún gerði og hvet ég alla til að hlusta þetta símtal inn á vef Sögu.
|
Icesave Já Takk opnar síðu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
8.2.2011 | 19:18
Að láta taka sig í óæðri endann..............
Þessi grein fjallar um tryggingarfélögin svo það sé á hreinu.
Mér er svo gersamlega ofboðið og get ekki frekar en venjulega þagað þegar þannig er ástatt, enda jú af Steinsstaðaætt.
Þannig er að við látum alltaf gera tilboð í okkar tryggingar reglulega og hikum ekki við að skipta þegar og ef næsti bíður betur. Við fengum tilboð svona skítsæmilegt, ekkert sérstak en allt í lagi og við tókum því. Svo háttar að við höfum afar sjaldan orðið fyrir tjóni, og ef það hefur verið þá hefur það verið mjög lágar upphæðir: Einu sinni varð spennufall á rafmagni þannig að það dó á frystikistunni og þar sem við vorum ekki heima til að setja hana í gang aftur skemmdist maturinn í henni og var það bætt, og einu sinni var bóndinn dæmdur í órétti á árekstri í fljúgandi hálku, lítið skemmdist en skráð tjón samt. Þetta eru sem sagt stóru upphæðirnar þar til nú um daginn að við setjum upp nýja innréttingu á baðið og kaupum nýja tengikrana hjá Húsasmiðjunni sem reyndust gallaðir og það lekur heitt vatn og skemmir fínu innréttinguna mína, tjónið metið á 150 eða rúmlega það var mér sagt, hef ekki fengið staf frá tryggingafélaginu um það, en í síma var mér þetta tjáð og að sjálfábyrgðin væri um 70,000 þannig að í minn hlut koma 80,000 kr sirka allt í lagi. þetta var sem sagt seint á árinu 2010 sem þetta gerðist.
Nú fæ ég svo rukkun um iðgjöld fyrir nýtt ár og þar kem ég að stóra málinu og sem ég kalla að láta taka sig í óæðri endann. Iðgjöldin höfðu hækkað all verulega eða um meira en 80,000 kr og ég fer að kanna málið.......jú sko, við höfðum orðið fyrir tjóni á síðasta ári og því féllu svo til allir aflættir niður..................... nú varð ég verulega reið en ákvað að telja upp á 10 já eða reyndar 100 mér veitir víst ekki af, og það leiddi af sér þá hugsun til hvers í andskotanum er maður að tryggja fyrir svona þegar í raun maður fær engar bæturnar?
Ég, þegar upp var staðið bar ALLAN kostnað af tjóninu og í raun miklu meira en það, því ef ég tryggi áfram þá er ég farin að greiða þeim aukatryggingar bara af því ég tilkynnti tjónið og þáði bætur, sem ég er nú þegar búin að greiða þeim að fullu með því og ef ég samþykki að tryggja eitt ár enn hjá þeim.
Nú leita ég tilboða í tryggingar þar sem eru engir aflættir ( svona eins og Múrbúðin) og engin sjálfábyrgð, ( ég vil nefnilega vera TRYGGÐ) en þá segja þau öll með tölu ... nei við getum EKKI tryggt þig þannig við gerum ekki slíka díla ( orðað fínna = skilmálar), sem ég mætavel skil , því þá geta þeir ekki lengur tekið okkur viðskiptavinina í rassgatið þegar þeim hentar.
4.1.2011 | 23:54
Táknrænt.
Þetta eru táknrænar fréttir í kjölfar framhaldsmyndar stöðvar 2 í kvöld og gærkvöld.
Dauðir fiskar í þúsunda tali reka á land í Bandaríkjunum þessa viku?
Fuglar hrapa í þúsundatali í Bandaríkjunum þessa viku?
Mikil fljóð í Ástralíku þessa viku?
Hverju er ég að gleyma?
Og ef við tækjum allt nýliðið ár..........ja það yrði ljóta samantektin.
Hvað er satt og hvað er logið og hverju er haldið leyndu fyrir okkur um alvarleika mengunnar?
Svo er sýndarmennskan ógurlega hér heima í flokkun á sorpi, sem þegar upp er staðið og ef allt er skoðað til enda að menga miklu meira heldur en ef heima væri setið. Er ekki komin tími til að huga að breyttum aðferðum og hlusta á okkar eigin samvisku en ekki hvað okkur er uppálagt að sé betra svona eða hinsegin. Því ef grant er skoðað þá virðast allar aðferðir í öllum málum, hvort sem það snýr að mengun eða hverju sem , er allt virðist miðast við hagsmuni fjármálakerfisins og þeirra sem standa á bak við það. Er kannski komin tími til að henda til hliðar vinstri og hægri, grænu og því sem telst andstæða þess og hugsa bara alveg upp á nýtt?
|
Flóð hækka kola- og stálverð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.12.2010 | 13:24
Gleðilega hátið.
Vil óska öllum bloggvinnum sem og öðrum þeim er líta hér inn gleðilegrar hátíðar með von um gæfuríkt komandi ár. 
Heyrumst hress, kát og málefnaleg á nýju ári, með léttum húmor inná milli og munum að taka okkur ekki of hátíðlega. 
Jólakveðja
Sigurlaug
21.12.2010 | 22:40
En þú viðheldur eineltinu.
Þögn í kringum einelti er til þess eins gert að viðhalda því og þar sem Atli vill ekki nefna nein nöfn í því sambandi en segir samt að slíkt viðgangist þá er hann í raun þátttakandi á línunni. Þögn er nefnilega sama og samþykki þegar kemur að einelti og það verður ekki upprætt nema með háværu nafnakalli. Sama gildir í skólum landsins, meðan þögnin umvefur gerendur þá verður þetta vandamál.
Atli !!! það er komin tími til að stinga á graftrarkýlið og þó fyrr hefði verið.
|
Lilja lögð í pólitískt einelti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.12.2010 | 20:05
Frábært og koma svo.
Þetta er nákvæmlega það sem ESB og Bretar óttuðust að gerðist og því var ofurkapp lagt á að við undirrituðum Icesave svo ekki skapaðist fordæmi sem kæmi fjármálaheiminum illa, svo illa að það gæti verið upphafið að því að ekki yrði framvegis hægt að velta tapi einkabankanna eilíflega yfir á hinn almenna borgara. OG ÞETTA ÆTLUÐU ÍSLENSK STJÓRNVÖLD AÐ TAKA ÞÁTT Í OG ERU ENN AÐ.
Nú eru Írar að sjá að auðvitað var það glórulaust af þeirra stjórnvöldum að gefa slíka yfirlýsingu en þau fyrirmæli hafa örugglega komið frá ESB sem fyrst og fremst gætir hag fjármálaheimsins en ekki hins almenna borgara. Írar ætla sér að læra af reynslu okkar sem betur fer og eru að rísa upp, það væri betur að íslenskir stjórnmálamenn færu að átta sig á fyrir hverja þeir eru að vinna og fara standa með þjóðinni og segja Bretum að við munum ekki greiða skuldir einkabanka sama hvað þeir hóta sem og við munum aldrei ganga í ESB sem er fyrst og fremst uppbyggt til að mæra og verja fjármálabrask hinna ríku og til að hægt sé að leika sér svo endalaust þarf okkur hinn almenna borgara til að vinna fyrir þeim. ÞEIR munu nefnilega aldrei dýfa hendi í kalt vatn svo mikið er víst.
|
Búsáhaldabylting á Írlandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
3.12.2010 | 23:10
Íslenska leiðin.
Er þetta jafnaðarstefnan í hnotskurn?
Þetta er auðvitað til háborinnar skammar að gera svona, en ekki kemur þetta á óvart. Svona hefur þetta alltaf verið og greinilegt að ekkert hefur breyst. Nú held ég líka að endanlega verði lögð niður sú kynslóð sem hefur reynt að kenna afkomendum sínum ráðdeild og hagsýni, að það væri eitthvað sem rétt væri að gera, glætan að maður haldi því áfram, þessi ríkisstjórn er búin að sjá til þess, sem og bankar og lífeyrissjóðir.
Að fólk skuli ekki skammast sín að setja slík fordæmi enn og aftur er mér alveg fyrirmunað. Er það "jafnaðarstefnan" í hnotskurn að verðlauna þá sem skuldsetja sig í botn og berja svo á þeim sem sína fyrirhyggju? Hvaða réttlæti er það mér er spurn? Hvernig er hægt yfirleitt hægt að leyfa sér slíkar aðgerðir sem mismuna fólki svo gróflega? Er þetta ekki komið á það stig að rétt sé að láta þetta fara út fyrir landsteinana, þangað sem fjallað er um mannréttindi?
Mér er svo algerlega misboðið hvað varðar þennan hluta þessa aðgerðarpakka sem boðið er uppá, því enn og aftur er það fjármálastofnanir sem sitja fyrir, en ekki réttlæti almenningi til handa.
Skammist ykkar bara.
|
Hinir ráðdeildarsömu tapa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
26.11.2010 | 10:00
Þöggun, herferð?
Nú er hafin einhvers konar herferð gegn svokallaðri neikvæðni. Og gert mikið í því að gera lítið úr þeim einstaklingum sem "þjást" af slíku. Koma upp úr skotgröfunum og líta á björtu hliðarnar er eitt af slagorðunum sem notuð eru. Merkilegt hvað þetta er alltaf notað mikið þegar einhver gagnrýnir stjórnvöld eða hverskonar valdhafa hvar sem þeir eru í stjórnkerfinu. Fyrir mér er þetta herferð gegn réttlátri reiði almennings sem og ráð til að þagga niður það sem ekki má vera uppi á borðinu.
Þetta heyrist ansi oft t.d gegn Lilju og "villiköttum" hennar, því þeir einstaklingar ganga full hart fram eftir sannleikanum og ekki talið ráðlegt að þau fái að leika lausum hala lengur og því er maskínan sett á stað.
Þessi sami söngur var settur á stað þegar heyrast fóru gagnrýniraddir á banka og fjármálakerfið á sínum tíma. Lítið var gert úr því fólki, og það þjáðist af öfund og neikvæðni og alls konar leiðinlegum kvillum. Við hefðum kannski betur leyft þeirri "veiru" að brjótast úr, værum þá kannski betur stödd í dag ef þessir "öfundsjúku leiðindapúkar" hefðu fengið að tjá sig til fulls sem og skoða málin í kjölinn.
Nú er þessi söngur komin á fullt aftur og mér heyrist við almenningur ætla enn og aftur að gleypa við honum, því guð forði okkur frá því að teljast leiðindapúkar sem höfum neikvæðni að leiðarljósi, sei sei nei við getum ekki látið það spyrjast um okkur.
23.11.2010 | 17:46
Hið undursamlega og almáttuga ESB.
Var það ekki sagt að slíkar hremmingar gætu ekki komið fyrir ríki innan ESB? Af hverju finnst mér það hafa verið ansi hávær "rök" á sínum tíma fyrir inngöngu. Og af hverju eru fréttamenn þessarar þjóðar ekki farnir að skoða þann áróður í samhengi við það sem nú er að gerast á Írlandi og Portugal?
|
ESB aðvarar Íra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
14.11.2010 | 00:43
Vilhjálmur Egilsson !
Djöfull varð ég svaðalega reið við að horfa á þessa karluglu tala um það að bætur væru hugsanlega of háar. Því í óskupunum spurði fréttmaður heldur ekki hvort það gæti verið að lægstu launin væru bara ALLT OF LÁG sem auðvitað er vandamálið í hnotskurn. Held að þessi ræfistuska ætti að prófa að lifa á örorkubótum strípuðum og tala svo við mig beint og milliliðalaust ef hann þorir, en það mun hann auðvitað ekki hafa kjark til
Vilhjálmur!!!!!! þér er hér með boðið í viðtal og fræðslu um hvernig það er fyrir öryrkja að lifa af þessu svívirðilega "háu" bótum eins og þú vilt kalla það.
30.10.2010 | 12:36
Aðdróttanir?
Hvers vegna nafngreinir Guðmundur Gunnarsson ekki þá sem hann er að tala um, í stað þess að vera með ómerkilegar aðdróttanir?
Svona málflutningur hjá manni í hans stöðu er fyrir neðan allar hellur og ætti hann að segja af sér ef hann er ekki maður til að hreinsa til hjá þessum meintu óþokkum. Ég efast svo sannarlega ekki um að slíkir eru til, en þegar einhver veit af slíku eins og Guðmundur á viðkomandi að vera maður til að gera eitthvað í málinu ella þegja ell. Og ef hann í sinni stöðu er ekki fær um að gera eitthvað .....HVER ÞÁ?
|
Mr. X kaupir raðhúsalengju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
12.10.2010 | 09:04
OJJJJJJJJ
|
Glæsihótel á Þingvöllum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 83
- Frá upphafi: 98745
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 68
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
- Austurglugginn vikublað
- Reynir Logi Heiðarsson Ömmustrákur
- Birkir Ívar Heiðarsson Líka ömmustrákur
- http://skagafjordur.com
- http://egilsstadir.is
Nýjustu færslur
- 24.5.2012 Haldið í Skagafjörðinn enn eitt vorið.
- 24.5.2012 Húsasmiðjan 109% hærra verð!
- 5.8.2011 Líka hjá Icelandair.
- 14.2.2011 Hahhahha
- 8.2.2011 Að láta taka sig í óæðri endann..............
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Helga Auðunsdóttir
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Steingrímur Helgason
-
Kolbrún Hilmars
-
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
-
Ómar Geirsson
-
Baldur Hermannsson
-
Bjarni Harðarson
-
Tiger
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Sverrir Stormsker
-
Stefán Bogi Sveinsson
-
Hreinn Skagfjörð Gíslason
-
Sigurveig Signý Róbertsdóttir
-
Magnús Sigurðsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Hulda Dagbjört Jónasdóttir
-
Benedikt V. Warén
-
Már Wolfgang Mixa
-
Páll Vilhjálmsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Eyþór Árnason
-
Halla Rut
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigríður Sigurðardóttir
-
Sigrún Óskars
-
Kristinn Halldór Einarsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
Hlédís
-
Haraldur Hansson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Hannes
-
Halla Vilbergsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Erla J. Steingrímsdóttir
Myndaalbúm
Færsluflokkar
211 dagar til jóla
Eldri færslur
- Maí 2012
- Ágúst 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008









